Könnun þessi er framkvæmd af Vörðu-Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins og er ætluð félagsfólki í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og BSRB. Könnunin er nú framkvæmd sjötta árið í röð og er markmið hennar að varpa ljósi á fjárhagsstöðu, starfsaðstæður og heilsu launafólks á Íslandi.
Þér er hvorki skylt að svara einstökum spurningum né könnuninni í heild sinni.
Meðferð persónuupplýsinga er samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga sem og persónuverndarstefnu Vörðu. Persónuupplýsingar eru aðskildar frá svörum og þess gætt í öllum greiningum að þær séu ekki persónugreinanlegar.
Vinsamlegast sendu tölvupóst á rannvinn@rannvinn.is ef þú hefur spurningar varðandi könnunina.
